Úrslit kosninga
Mesti Nöldrarinn: Gamli
Meiddasti leikmaðurinn: Árni
Afsakanabestur: Árni
Grófastur: Davíð
Mark ársins: Gamli (smurning í Samúel Örn frænda)
Besti útlendingurinn: Sergej
Flottastur á velli: Geiri
Besti Félaginn: Jóndi
Besti varnarmaðurinn: Maggi
Besti Leikmaðurinn: Davíð
Markahæstur: Jóndi 7 mörk
Stoðsendingahæstur: Jóndi 7
Oftast maður leiks: Davíð 3
Besta mæting: Maggi 100%
Versta mæting: Árni 14 %
Spjaldakóngar: Sergej (1 rautt) og Gamli (2 gul)
Lokahóf (uppfćrt)
Lokahóf Hvatbera árið 2011 verður haldið laugardagskvöldið 1.október kl 20-00 að Hamravík 16 í Grafarogi.
Símanúmerið mitt er 693-2938 ef einhver villist :)
Það verður slatti af veigum í boði, alveg 43 bjórar, böns af staupum og bolla. Þó mæli ég með því að menn taki eitthvað smá af gleðivökva með sér ef ætlunin er að lyfta sér vel upp. Við sleppum matnum þetta árið og einbeitum okkur að bjórnum í staðinn. Svo menn verða að mæta vel étnir...
Staðfest mæting:
Jón Halldór
Maggi
Árni
Steini Mark
Gamli
Sergei
Arnar
Þeir sem komast ekki:
Geiri
Siggi
Tumi
Á eftir að heyra frá hinum... Vonandi koma sem flestir...
Sjáumst á laug...
Jóndi
Lokahóf tímasetning
Lokahófið verður laugardaginn 1. okt heima hjá mér í Hamravík 16 í Grafarvogi (rétt hjá Egilshöllinni). Mæting er kl 20:00 og ég vil sjá sem flesta í stuði... Þetta verður með hefðbundnu sniði nema að það verður ekki mökkblekaður Geiri til staðar þetta árið...
Það væri fínt ef þið gætuð kommentað hvort þið komist eða ekki...
Kveðja,
Jóndi
Lokahóf
Eigum við ekki að ljúka sumrinu með lokahófi??
Það hefur nú alltaf verið legendary stemning á lokahófunum í gegnum tíðina og mikið fjör. Ég get haldið það heima hjá mér föstudaginn 30.sep eða laugardaginn 1. okt. En ég veit að Siggi fer að gráta yfir því vegna þess að hann kemst ekki þá. Eru menn með aðrar hugmyndir að dagssetningum og er þá einhver sem getur hýst liðið eina kvöldstund???
Endilega kommentið og tjekkið á splúnkunýrri könnun...
Jóndi
Úr leik :(
Fyrri hálfleikur var frekar slakur eins og ansi oft áður hjá okkur, lítið um hreyfingar á mönnum og þ.a.l var spilið ekki upp á marga fiska. Við héldum þeim samt í skefjum og þeir náðu svo sem ekki að skapa sér mikið. Seinni hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri og þeir náðu að komast yfir snemma með frekar óheppilegu marki. Þá hættu menn að spila eins og aumingjar og við gjörsamlega lágum á þeim það sem eftir var af leiknum. Við náðum að skapa okkur fullt af fínum færum en þeir spiluðu mjög þétta vörn og markmaðurinn hjá þeim varði oft á tíðum vel. Inn vildi boltinn bara alls ekki og þeir skoruðu síðan þetta týpíska 2-0 mark þegar við vorum nánast allir komnir fram. Lokastaða 2-0 fyrir þeim.
Þetta er reynsla sem við þekkjum því miður alltof vel. Við bara megum ekki fá á okkur fyrsta markið í leik í úrslitakeppni. Sorglegur endir á annars ágætis sumri hjá okkur.
Allir að velja mann leiksins og svo höldum við gott lokahóf!!! Nánar um það síðar...
16 liđa úrslit hefjast
Það er algjörlega MÖST mæting!!
Commenta með mætingu takk
Smá tölfrćđi fyrir úrslitakeppnina
Markahæstir:
Jóndi = 7
Sergei = 5
Davíð = 5
Stoðsendingar:
Jóndi = 7
Tumi = 4
Arnar = 4
Spjöld:
Sergei = 1 rautt
Gamli = 2 gul
Davíð = 1 gult
Jóndi = 1 gult
Oftast maður leiksins:
Gamli = 2
Arnar = 2
Spilaðir leikir:
Maggi = 13 (100%)
Gamli = 11
Sergei = 11
Ekki spilaðir leikir:
Árni = 12
Biggi = 10
Mási = 9
Hvatberar í úrslitakeppnina (Stađfest)
Í hálfleik ræddum við um það að fá meiri hreyfingu á leikmenn fram á við og reyna að láta boltann fljóta meira, því í sannleika sagt er það okkar helsti styrkur. Leikmenn virtust hafa tekið spjallið bókstaflega því eftir ca. 7 sek í seinni hálfleik skoraði undirritaður eftir góðan undirbúning frá Tuma. Boltinn rúllaði vel og við sköpuðum okkur álitlegar sóknir og fengum fullt af færum. Arnar skoraði 2. markið eftir gott spil við Tuma og Mási (velkominn til baka félagi) skoraði 3. markið eftir sendingu frá Sigga. Degils kláraði síðan leikinn með góðu marki eftir þríhyrningsspil við undirritaðan. Þeir náðu síðan að skora ágætis mark í lokin og náðu loksins að koma boltanum framhjá Rússanum. Lokatölur voru því 4-1 okkur í vil.
Í stuttu máli þá var þetta slakur fyrri hálfleikur og frábær seinni hálfleikur og niðurstaðan verður að öllum líkindum sú að við lendum í 3. sæti sem yrði að ég held okkar slakasti árangur frá upphafi í riðlakeppni. En við erum komnir í úrslitakeppnina og það er það eina sem skiptir máli. Þegar þetta er skrifað þá hef ég ekki hugmynd um hvenær það allt saman byrjar en ég set það á síðuna um leið og ég veit eitthvað. Rússinn var valinn maður leiksins síðast með yfirburðum og óskum honum til hamingju með það og allir að kjósa mann leiksins í nýrri könnun.
Mörk: Jóndi, Arnar, Mási, Degils
Stoðsendingar: Tumi 2, Siggi, Jóndi
Varnarleikur: Mjög góður (Maggi og Gamli voru góðir í kvöld)
Jóndi
Hvatberar-Frómas
Það er búið að flýta leiknum á föstudaginn næsta til kl 19:00
Allir að tilkynna með mætingu...
Það er möst mæting!!!
Solid sigur í kveđjuleik kóngsins
Leikurinn hjá okkur í gærkvöldi markaði tímamót í 8. ára glæstri sögu Hvatbera. Okkar ástsæli fyrirliði og þjálfari Ásgeir Ástvaldsson var að leika sinn síðasta leik fyrir Hvatbera í bili í það minnsta þar sem hann er farinn í nám til Svíþjóðar. Kallinn mætti í borgararlegum klæðum í tilefni dagsins en var engu að síður flottur á hliðarlínunni eins og alltaf. Leikurinn sjálfur var á sögulega lágu tempói en það var kannski ekki skrýtið þar sem við byrjuðum leikinn án varamanna, en Steini vörn kom svo á bekkinn um miðjan fyrri hálfleik. Fyrsta markið í leiknum var af dýrari gerðinni en þá sendi Tumi góða sendingu inn á Rússann sem var á fleygiferð og móttakan var svo góð að hann skildi varnarmanninn eftir á hælunum og smellti boltanum í netið, frábærlega gert. Þeim tókst síðan að jafna en Dave kom okkur í 2-1 stuttu síðar eftir gott spil við Jónda. Þeir jöfnuðu aftur í upphafi seinni hálfleiks en Rússinn kom okkur aftur yfir strax í kjölfarið með fínu marki eftir gott spil. Þá var komið að stundinni sem allir höfðu beðið eftir, Geiri fékk heiðursinnáskiptingu þegar um 5 mín voru eftir að leiknum. Steini mark dældi boltanum a'la Stoke á kallinn það sem eftir lifði leiks og úr einni slíkri sókn náði Rússinn að senda fyrir á Geira sem settann í opið mark. Frábær endir á leiknum. Niðurstaðan 4-2 sigur og við getum verið bara þokkalega sáttir með það. Staðan í riðlinum er þannig að við þurfum að ná jafntefli í það minnsta í lokaleiknum gegn Frómas til að tryggja okkur inn í úrslitakeppnina. Sá leikur er Föstudaginn 26.ágúst kl 21 og það er gríðarlega mikilvægt að menn mæti í þann leik!!!
Mörk: Rússinn 2, Dave og Geiri
Stoðsendingar: Jóndi 2, Rússinn og Tumi
Hvatberi#2